Færsluflokkur: Bloggar

Til hamingju Helgi !

Með Billboard No. 1

 

c_documents_and_settings_tryggvi_my_documents_my_pictures_no1_487635

http://th.blog.is/blog/th/entry/492344/


Íslenskt lag í toppsæti á Billboard !


Þeir sem hafa gaman af vandaðri “R&B og danstónlist kannast sjálfsagt við
lagið “Beautiful” með söngkonunni Taylor Dane.

http://www.taylordayne.com/home.php

Lagið hefur verið allnokkuð spilað í útvarpi á Íslandi og er nú
nr. 1 á Billboard hot club dance play í U.S.A.:

http://www.billboard.com/bbcom/charts/chart_display.jsp?f=Hot+Dance+Club+Play&pageNumber=Top+1-10&g=Singles

Lagið kom inn á listann í 14. sæti fór næst í 9.sæti síðan fimmta, síðan 3. og er nú
á toppnum.

No

Það er hins vegar á fárra vitorði að höfundur og “producer” lagsins
“Beautiful” er Íslendingurinn Helgi Már Huebner, en hann hefur á
undanförnum áratug starfað að sinni listsköpun í Noregi undir
listamannsnafninu  “Hitesh Ceon”

HELGI 1

http://www.myspace.com/hiteshceon


Eftir því sem best er vitað hefur enginn íslenskur artisti náð topp
sætinu á þessum lista áður. Nema að sjálfsögðu BJÖRK - þrisvar með "Big
time sensuality" 1994, "Hyper-ballad" 1996 og síðast "I miss you" 1997. Einnig má nefna að Svala Björgvins náði lagi inn á listann 2001 ,það náði þó ekki inn á topp 50. Svo var það um miðjan 9. áratuginn að hljómsveitin MEGABYTE komst í 5. sætið með cover af erlendu lagi. Sú hljómsveit samanstóð aðallega af Siggu Beinteins og Friðriki Karlssyni ú Stjórninni.

Lagið Beautiful hefur einnig verið 11 vikur á “Adult Contemporary” lista
Billboard og er nú í 23. sæti.


Taylor Dane er stórt númer frá fyrri tíð og seldi u.þ.b. 75 milljónir  (!)
platna á níunda og tíunda áratug tuttugustu aldar. Hún hefur 10 sinnum
átt hit á topp 10 lista í U.S.A. og 3 x verið tilnefnd til Grammy
verðlauna:

http://www.billboard.com/bbcom/retrieve_chart_history.do?JSESSIONID=wSqFHQtbF1yBC7cNpvfgz62kKc4WspzLsQDgmgMT1hxyLrQVpHmn!2045449040&model.vnuArtistId=4419&model.vnuAlbumId=1098335


Helgi Már Huebner - Hitesh Ceon hefur einnig starfað með fjölda annara
“R&B” listamanna og má nefna að lag hans “Symphony” sem hann samdi ásamt
söngkonunni Charlotte Kelly lenti í 3. sæti í keppni Billboard um besta
“R&B” lagið ársins 2007.

http://billboardsongcontest.com/?s=world

Helgi vinnur einnig sem producer með Norskum artistum, hefur t.d. unnið
með Morten Harket. Á árinu 2007 hóf Helgi samstarf við Hip Hop flokkinn
"Madcon". Er óhætt að segja að það hafi skilað góðum árangri því Madcon er
algjört "Monster hit" í Noregi og víðar. Enda eru þessir náungar léttir sem lækir:

“Beggin” (Gamalt Frankie Valli lag)sem hann útsetti og produseraði fyrir
Madcon í var t.d. 12 vikur í 1. sæti og fékk algjöra metsölu, 6x platinum.

http://lista.vg.no/show_list.php?ListsOp=showWeek&week=4&year=2008&listID=1&direction=back

Sú hljómsveit vinnur nú að plötu þar sem Helgi semur lögin og er
producer. Lagið "Beggin" er einnig komið í dreifingu í Evrópu og fór beint
inn á vinsældalista í Þýskalandi og er nú í 4. sæti á sölulista iTunes þar
í landi.

Visir.is sagði frá því einn íslenskra fjölmiðla þegar lagið Beautiful fór inn á topp 10 á Billboard,

8. mars 2008:

http://www.visir.is/article/20080308/LIFID01/80308034/-1/LIFID 

Þar sem um er að ræða frænda minn er ég ekki dómbær á það hvort þetta er fréttnæmt.

Hér er semsagt  um skúbb að ræða á blogginu mínu. Hehe !

Til hamingju Frændi !

T.H.

 

 


Nýr Landsliðsþjálfari fundinn !

Þjálfari sem nær árangri !
Smile
447022A
Guðríður Guðjónsdóttir, að sjálfsögðu.
Dagur hvað...?

mbl.is Dagur tekur ekki við íslenska landsliðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nóg boðið . . .

Það er gott að búa í Kópavogi.

Tounge

http://www.petitiononline.com/nogbodid/


mbl.is Mikil vonbrigði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Markakonungurinn

448273A

Marel með boltann.

Takið eftir hvað hinn gaurinn er hræddur . . .


"El Von Karajan del fútbol"

*****

"El Classico" er alltaf toppleikur en leikurinn í gærkvöld náði aldrei neinu flugi. Báðir leikir þessara liða á síðustu leiktíð voru algjör gargandi snilld, sérílagi seinni leikurinn sem endaði 3 – 3 og Lionel Messi jafnaði á síðustu mínútu.
Hvítu kallarnir í Real Madrid eru betri, voru betri og verða alltaf betri. Bernd Schuster er einn albesti leikmaður sem leikið hefur á Spáni. Hann var jafnan kallaður “El Von Karajan del futbol” og það viðurnefni á ekki síður við hann í dag. Aftur á móti er komið á daginn að þessi Frank Rijkaard á ekkert að vera að skipta sér af fótbolta. Hann verður vonandi rekinn sem fyrst og þá getur hann farið að einbeita sér að því sem hann er bestur í en það er þetta:

 http://www.youtube.com/watch?v=N9xzNjQ984I  


Býsna einkennilegt sport

Býsna einkennilegt sport þessi krikket.
Þetta er stundum sýnt á SKY fréttastöðinni.

Í öllum löndum sem spila krikket er vinstri umferð..

Völlurinn er á stærð við 10 fótboltavelli og boltinn á stærð við tennisbolta.
Enginn áhorfandi sér neitt. Ef einhver skorar spyrst það bara smám saman út.

Venjulegur leikur stendur yfir í fimm daga.
Einnig er til svokallaður hraðleikur sem stendur yfir í 3 daga.
Allir leikmenn eru með hvítan varalit.
Það er enginn hálfleikur eins og í fótbolta, heldur er te, yfirleitt um um hádegisleytið.

Í fótbolta eru algeng úrslit eitthvað á borð við eitt núll, eða þrjú tvö.
Í handbolta u.þ.b. 20 til 30 mörk á lið og sá vinnur sem skorar fleiri. ( ! )

Í krikket eru algeng úrslit einhernvegin svona:

247.3 * 54B (17 overs)

En athugið að þar er aðeins um annað liðið að ræða.
Hitt liðið fær:

419W (wickeds) * 53,86

Og eins og allir sem kunna eitthvað í krikket sjá náttúrulega strax er hér um
að ræða jafntefli.

Aðal keppnin er kölluð the ashes , heimsmeistarakeppni landsliða. Þar er keppt um bikar sem er úr leir og er 3 cm á hæð.


Hægt að hengja hann á lyklakippu til dæmis.

Jamm . . .

TH


Mayweather vs. Hatton

Tiger Woods, Roger Federer, Lionel Messi . . . Fremstu íþróttamenn nútímans ?  Góðir gestir bætum einu nafni við: Floyd Mayweather jr. Nú tvímælalaust lang besti "pund fyrir pund" boxari þessa heims. Fer í sögubækurnar ósigraður, með 39 sigra í 39 bardögum.  Lauk ferlinum með tveimur af sínum bestu keppnum: Gegn Oscar de la Hoya í haust og nú í gærkvöld gegn Ricky "hit man" Hatton. Hatton mætti einnig ósigraður til leiks. Hann hafði unnið alla sína 43 bardaga. Gríðarlega harður nagli og líklega sá eini sem hugsanlega gat átt erindi í Floyd M. Bardaginn var magnaður og skemmtilegur, frammistaða Hattons var glæsileg en hann átti í rauninni aldrei mikla möguleika. Floyd Mayweather er hin fullkomna mannlega bardagavél, hann er einfaldlega ósigrandi og hefur yfirburði á öllum sviðum þessarar göfugu íþróttar. Faðir hans F.M. senior var hnefaleikameistari og þjálfaði strákinn allt frá þriggja ára aldri, enda sést það greinilega um leið og maður gáir, að öll svið  íþróttarinnar eru honum algerlega í blóð borin. Hraðinn maður, VÁÁÁ ! Hendurnar eins og eldingar út um allt, höggin koma úr öllum áttum, krókar, stungur, upphögg, bein högg, allt  hittir alltaf í mark og á sama augnabliki er hann horfinn, langt í burtu.  Ósnertanlegur. Að hann skuli ekki (varla) hafa fengið högg á sig gegn sjálfum "hit man" Hatton, ja, það segir sitt. Hraði, styrkur, höggþyngd, úthald, tækni í vörn og sókn, staðsetningar, fjölbreytni, strategía, harka, hann er bara langbestur í þessu öllu. En hann sigraði, steeiiin rotaði Ricky Hatton í 10. lotu, ekki vegna neins af þessu, heldur vegna þess að hann hélt ró sinni fullkomlega í öllum hraðanum og var "ekonomískur" í öllum aðgerðum, gerði bara það sem þurfti. Ég hélt með Hatton, ég skal viðurkenna það. F.M. er hrokagikkur og berst mikið á eins og hans besti vinur rappvitleysingurinn 50 c. Til marks um það má nefna að hann hefur nú tekið upp viðurnefnið "Pretty Boy" Floyd "Money" Mayweather. Þannig að maður var að vona að Hatton lækkaði aðeins í honum gorgeirinn. En svo kom Pretty Boy Floyd Money Mayweather í viðtal eftir bardagann og var kurteisin uppmáluð og auðmýktin með. . . Beygði sig og bugtaði í allar áttir og hlóð lofi á mótherja sinn... alltaf óútreiknanlegur.

TH


Refill . . .

Blúsari hef ég nú aldrei mikill verið. En blúsinn er íþrótt, gulli betri og ég hef svosem tekið gigg með Vinum Dóra og Tregasveitinni stöku sinnum. Ég var að spila á blúskveldi á laugardaginn 1. des. með nokkrum félögum í bandi sem á eftir að koma sterkt inn eins og sagt er. Okkur fannst vanta meiri breidd í blús kúltúrinn hér í bænum, þannig að við bjuggum til blúsband sem heitir Refill. Þetta er nokkuð harðsnúinn hópur hljóðfæraleikara, Boggi á trommur, Goggi á bassa, Siggi “Kentár” á munnhörpu, undirritaður Gamli Skalli á gítar og hinn ávallt grafíski Pjétur Stefánsson (P.S. & co) á gítar. Þeir tveir síðastnefndu sáu síðan um sönglistina. Eins og oft vill verða þegar um fyrsta gigg er að ræða gerist margt óvænt. T.a.m. að Siggi tók þvílíkt munnhörpusóló að elstu menn muna ekkert eftir því. Varð þá Pétri Stefánssyni að orði að tímabært væri að maðurinn fengi almennilegt viðurnefni sem hentaði blúsmunnhörpuleikara af slíku ógnar kaliberi og verður maðurinn hér eftir nefndur Siggi “Blind Boy” Kentár. Gildir þá einu þó hann hafi hauka sjón á báðum. Þetta gekk semsagt bara vel hjá okkur og hefur nú verið ákveðið að spila aftur. Það verður semsagt á Classic Rock í Ármúlanum Fimmtudaginn 13. des og er fastlega reiknað með að stemningin verði alveg gráblúsug.T.H. 

 


Fullt raskat af peningum ?

Einu sinni var Denni forsætisráðherra. Hann hætti og gerðist seðlabankastjóri, því hann átti sér hugsjón um mikilvægar aðgerðir í þágu fólksins. Var það einkum tvennt sem honum þótti brýnt: Í fyrsta lagi að láta prenta 2000 króna seðil. Snilldarhugmynd fannst Denna, eitthvað sem kæmi fólkinu strax til góða, enda var þetta fyrsta verk hans í nýja stólnum. Mikilvægt forgangsmál. Rándýrar hönnunarstofur héldu alþjóðlega samkeppni um hönnun nýja seðilsins. Seðillinn kom strax fyrir almennings sjónir og var prentaður í gífurlegu upplagi, aðeins örfáum vikum eftir bankastjóraskiptin. Fólkið fann strax muninn. Almenningur ræddi vart um annað en nýja seðilinn og hversu röggsamur nýi bankastjórinn væri að kýla á hlutina.

Samt floppaði seðillinn fullkomlega, fólkið áttaði sig bara ekki á tilganginum. Varla nokkur einasti maður vildi nota hann og hann sést varla lengur, sennilega var hann tekinn úr umferð í kyrrþey.

Þessi æfing Steingríms olli þó ekki verulegum skaða, enda seðlaprentun sem slík ekki stórvægilegur liður í heimilisbókaldi stjórnarheimilis - eða ríkisbanka. Hönnunin kostaði að vísu stórfé. Og prentunin smávegis í viðbót. En það var ekkert tiltökumál. Ríkissjóður hafði margoft sýnt það í ráðherratíð Steingríms að hann fór létt með svona smotterí.

Denni var auðvitað nett fúll yfir floppinu. Sjálfur notaði hann nú eingöngu 2000 kalla, snerti bara ekki á gömlu 1000 og 5000 köllonum. Þeir eru óþjálir og gamaldags, þeir tilheyra fortíðinni , sagði hann, og borgaði alltaf með 2000 kalli í mötuneytinu í bankanum, þó hann fengi helling af seðlum til baka.

En Denni hefur alltaf verið næmur á fólk. Áratugalöng stúdering á skilaboðum kjósenda skilaði sér í næsta áhugamáli hans: -Það er alveg ljóst að seðlar eru of dýrir í prentun og fólkið vill frekar nota mynt, nú skiptum við út græna hundraðkallinum og tökum upp mynt í staðinn-.

Það var og. Denni framkvæmdi án þess að hika og græni hundraðkallinn tilheyrir nú fortíðinni.

Ég segi nú bara fyrir mig að ég er ekki sáttur. Hið alþýðlega orðatiltæki Ingva Hrafns: -Fullt rassgat af peningum- hefur nú öðlast nýja og bókstaflegri merkingu. Eftir eina til tvær sjoppuferðir er meðal Íslendingurinn nú
rambandi á barmi brjóskloss vegna slagsíðu og hryggskekkju, með klink í kílóavís í rassvasanum. Fullt raskat af peningum, skal það heita.
(Íslendingar eiga afgerandi heimsmet í fjölda brjósklosaðgerða)

Við skulum athuga það að minnsti íslenski seðillinn er nú 500 kr. Það slagar hátt í 10 dollara. Ef við tökum til viðmiðunar hið mjög svo meðfærilega seðla og myntkerfi Bandaríkjamanna sjáum við að þeir eru með 3 seðla minni en sá minnsti íslenski; 1$ 2$ og 5$. Og sá minnsti íslenski slagar hátt í að vera tvöfalt stærri en sá þriðji minnsti af dollaraseðlunum.
Ameríska klinkið er einnig sérlega létt. 1, 5 og 10 centa myntin er bara mylsna, á stærð við gömlu álkrónuna. Umfangsmesta myntin er 25 cent og er hún lítið stærri en íslenski 5kallinn en þynnri.

Auðvitað skiptir það máli að eiga nóg af þessu öllu.

En eftir situr spurningin:
Til hvurs þessi óþægindi?
Ha?

T.H.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband