Fullt raskat af peningum ?

Einu sinni var Denni forsætisráðherra. Hann hætti og gerðist seðlabankastjóri, því hann átti sér hugsjón um mikilvægar aðgerðir í þágu fólksins. Var það einkum tvennt sem honum þótti brýnt: Í fyrsta lagi að láta prenta 2000 króna seðil. Snilldarhugmynd fannst Denna, eitthvað sem kæmi fólkinu strax til góða, enda var þetta fyrsta verk hans í nýja stólnum. Mikilvægt forgangsmál. Rándýrar hönnunarstofur héldu alþjóðlega samkeppni um hönnun nýja seðilsins. Seðillinn kom strax fyrir almennings sjónir og var prentaður í gífurlegu upplagi, aðeins örfáum vikum eftir bankastjóraskiptin. Fólkið fann strax muninn. Almenningur ræddi vart um annað en nýja seðilinn og hversu röggsamur nýi bankastjórinn væri að kýla á hlutina.

Samt floppaði seðillinn fullkomlega, fólkið áttaði sig bara ekki á tilganginum. Varla nokkur einasti maður vildi nota hann og hann sést varla lengur, sennilega var hann tekinn úr umferð í kyrrþey.

Þessi æfing Steingríms olli þó ekki verulegum skaða, enda seðlaprentun sem slík ekki stórvægilegur liður í heimilisbókaldi stjórnarheimilis - eða ríkisbanka. Hönnunin kostaði að vísu stórfé. Og prentunin smávegis í viðbót. En það var ekkert tiltökumál. Ríkissjóður hafði margoft sýnt það í ráðherratíð Steingríms að hann fór létt með svona smotterí.

Denni var auðvitað nett fúll yfir floppinu. Sjálfur notaði hann nú eingöngu 2000 kalla, snerti bara ekki á gömlu 1000 og 5000 köllonum. Þeir eru óþjálir og gamaldags, þeir tilheyra fortíðinni , sagði hann, og borgaði alltaf með 2000 kalli í mötuneytinu í bankanum, þó hann fengi helling af seðlum til baka.

En Denni hefur alltaf verið næmur á fólk. Áratugalöng stúdering á skilaboðum kjósenda skilaði sér í næsta áhugamáli hans: -Það er alveg ljóst að seðlar eru of dýrir í prentun og fólkið vill frekar nota mynt, nú skiptum við út græna hundraðkallinum og tökum upp mynt í staðinn-.

Það var og. Denni framkvæmdi án þess að hika og græni hundraðkallinn tilheyrir nú fortíðinni.

Ég segi nú bara fyrir mig að ég er ekki sáttur. Hið alþýðlega orðatiltæki Ingva Hrafns: -Fullt rassgat af peningum- hefur nú öðlast nýja og bókstaflegri merkingu. Eftir eina til tvær sjoppuferðir er meðal Íslendingurinn nú
rambandi á barmi brjóskloss vegna slagsíðu og hryggskekkju, með klink í kílóavís í rassvasanum. Fullt raskat af peningum, skal það heita.
(Íslendingar eiga afgerandi heimsmet í fjölda brjósklosaðgerða)

Við skulum athuga það að minnsti íslenski seðillinn er nú 500 kr. Það slagar hátt í 10 dollara. Ef við tökum til viðmiðunar hið mjög svo meðfærilega seðla og myntkerfi Bandaríkjamanna sjáum við að þeir eru með 3 seðla minni en sá minnsti íslenski; 1$ 2$ og 5$. Og sá minnsti íslenski slagar hátt í að vera tvöfalt stærri en sá þriðji minnsti af dollaraseðlunum.
Ameríska klinkið er einnig sérlega létt. 1, 5 og 10 centa myntin er bara mylsna, á stærð við gömlu álkrónuna. Umfangsmesta myntin er 25 cent og er hún lítið stærri en íslenski 5kallinn en þynnri.

Auðvitað skiptir það máli að eiga nóg af þessu öllu.

En eftir situr spurningin:
Til hvurs þessi óþægindi?
Ha?

T.H.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jens Guð

Blessaður.

  Velkominn á þennan vettvang!  Það einfaldar fyrir mann að fylgjast með blogginu þínu.

Jens Guð, 25.10.2007 kl. 23:18

2 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Er til tveggja dollara seðill?

Tvöþúsundkallinn er nú ekki alveg gagnslaus - ég einmitt ætlaði að vera með eintóma 2000-kalla í veskinu þegar ég færi út á djammið á gamlárs/nýársdjamm áramótin ´99-2000 - þetta sem margir kalla ranglega aldamót. Lagðist svo í flensu og fór ekki neitt, en átti tugi þúsunda í 2000-köllum.

Hress annars?

Ingvar Valgeirsson, 31.10.2007 kl. 10:07

3 Smámynd: Pálmi Gunnarsson

þegar ég stofan reikning í banka vil ég fá hlaupahjól með hliðarvagni undir klinkið svo ég fái ekki svona slæmt í mjóbakið og rasskatið ...  hæ dúd,,, gaman að sjá þig hér. Ein spurning hvað varð um mál 214 á vefnum..

Pálmi Gunnarsson, 24.11.2007 kl. 21:37

4 identicon

Hvaða, hvaða. Ekkert stress - nota bara kort.  Þau eru létt og þægileg og skapa því enga slagsíðu. Peningar eru hvort eð er úrelt fyrirbæri.

svafa (IP-tala skráð) 26.11.2007 kl. 14:29

5 identicon

Ég fór í búð í dag og borgaði með peningum (úr hægri vasanum) og krakkaskömmin sem stóð vaktina á kassanum gat ekki gefið mér til baka. Skiptimyntin í kassanum var ekki næg.

Ég legg til að við leggjum niður peninga.

Svafa (IP-tala skráð) 29.11.2007 kl. 20:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband