20.7.2011
Málefnalegt ?
Jónína Michaelsdóttir skrifar:
Meðvitað eða ómeðvitað virðast býsna margir í höfuðborg landsins líta á landsbyggðarfólk eins og óðalsbændur litu á leiguliða sína. Endilega rækta landið, framleiða matvæli, taka vel á móti þéttbýlisaðlinum þegar hann er að sporta sig um landið í sumarfríinu, sem og laxveiðimönnum og hreindýraskyttum. Gott ef menn geta komið sér upp smáfyrirtækjum til að komast af. Krúttlegt að versla þar þegar drepið er niður fæti í plássinu í nokkra klukkutíma. Ekki má gleyma að baða sig dálítið í utanaðlærðri ást á ósnortinni náttúru. Láta flæða um vitundina upphafna ábyrgðarkennd. Virkilega góð tilfinning. Svo er fólkið á landsbyggðinni svo viðfelldið og vel að sér. Finnur lausnir ef upp koma vandræði. Gott að vita af því. Virkilega gott.
Hins vegar ætti þetta fólk ekki að blanda sér í stjórn landsins. Það er bara frekja. Óðalið er í höfuðborginni og þeir sem þar véla um mál vita best hvað þjóðinni er fyrir bestu. En þetta virðast Íslendingar utan höfuðborgarsvæðisins ekki skilja. Það er nú verkurinn.
Tryggvi Hübner ritar:
Hvort sem það er meðvitað eður ei virðist mikill fjöldi landsbyggðarfólks líta á okkur höfuðborgarbúa eins og skipstjórar líta á undirmenn sína - messagutta. Við eigum endilega að sjá um að stofna skóla og vísindagarða, malbika götur, reka leikhús og sjoppur og svona, svo við getum tekið almennilega á móti Landsbyggðaryfirstéttinni þegar hún mætir í bæinn til að komast í bað og bíó. Þó við gerum fátt og nennum litlu, þá er bara krúttlegt að við reynum að stofna videoleigur og veitingahús til að reyna að bjarga okkur, svo þeir þurfi ekki algjörlega að halda okkur uppi. Já þeim finnst jafnvel gustuk að kíkja í smástund og fá sér hamborgara og kók og sýna utanaðlærða aðdáun sína á malbiki, tækni og vísindum, sem þeir halda að sé fínt en skilja þó auðvitað í rauninni ekkert í. En í sínu tímabundna frjálslyndiskasti fyllist hugur þeirra af upphafinni meðvitund um þéttbýlið sé kannski allt í lagi... í hófi. Virkilega góð bara kaupstaðarlyktin, stundum, ha ... Svo er það svo merkilegt að í sumum hverfum finnst jafnvel fólk sem er alls ekki svo vitlaust, getur jafnvel leyst ýmsar léttar þrautir og fundið lausnir.
Hins vegar ætti þetta fólk ekki að blanda sér í stjórn landsins. Það er bara frekja. Óðalið er í sveitinni, því verður aldrei breytt. En þetta virðast höfuðborgarbúar ekki skilja. Það er nú verkurinn. 
Bloggar | Breytt 21.7.2011 kl. 04:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.4.2011
Mikilvægasta þjóðþrifaverk Íslendinga
Mikilvægasta þjóðþrifaverk Íslendinga er að leggja niður RUV.
Þetta er mannogdýrfjandsamleg stórglæpamafía sem mergsýgur alla alþýðu manna og notar peningana til að berjast gegn íslenskri menningu. RUV sendi níðingasveitir sínar og ríkislögregluna til höfuðs einstæðum mæðrum og fátæku fólki og hótaði öllu illu sé ekki greitt stórfé , svokallað afnotagjald eins og skot. Þegar þessu var mótmælt var gjaldinu breytt í nefskatt , sem er þess eðlis að ef einhver vill ekki greiða hann þá er selt húsið hans á uppboði og börnunum hent út. Þegar þessir mafíustarfsmenn hafa náð að kvelja fram vilja sinn er farið með góssið upp í Efstaleiti, þar sem peningarnir eru notaðir til að greiða fyrir alls kyns öfgalúxus fyrir feita kallinn sem er Guðfaðirinn. Þar er aðallega um að ræða lúxus bíla, vín og snittur. Restin er svo notuð til að ráða fólk í atvinnubótavinnu við að passa að ekkert menningarlegt efni komist í útsendingu og að fallbeygingar í íslensku máli séu örugglega rangar. Síðan eru herskarar af fólki í vinnu við að telja almenningi trú um að ef starfsfólki RUV verði ekki fjölgað úr 4793 í ca. 37.500 manns lágmark og bætt við 12 hæðum í viðbót ofan á hús mafíunnar, þá muni stafsetningarvillum fjölga enn og þá verði aldrei sýnt neitt annað en endursýningar á brasilískum sápuóperum frá sjötta áratug síðustu aldar.
Allt verði semsagt eins áfram.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.11.2009
Jói Jósteins
Jói Jósteins datt í það um daginn og var barinn og rændur í bænum.
Nú hljóta allir feministar og aðrir að sameinast um þá sjálfsögðu réttlætiskröfu
að hann verði líka rekinn úr vinnunni.
Einnig allir þeir sem vinna með honum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.4.2009
Glæsilegt !
|
Úrslitakeppnin hafin |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.2.2009
Í hita leiksins
Í hita leiksins falla ýmis óígrunduð ummæli. Og það er bara eðlilegt.
Það er sjálfsögð og íþróttamannsleg framkoma hjá Sigurði að biðjast afsökunar.
Til fyrirmyndar, enda er maðurinn snillingur í handbolta og af góðum ættum.
|
Yfirlýsing frá Sigurði Eggertssyni |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.1.2009
Býsna einkennilegt sport
Býsna einkennilegt sport þessi krikket.
Þetta er stundum sýnt á SKY fréttastöðinni.
Í öllum löndum sem spila krikket er vinstri umferð..
Völlurinn er á stærð við 10 fótboltavelli og boltinn á stærð við tennisbolta.
Enginn áhorfandi sér neitt. Ef einhver skorar spyrst það bara smám saman út.
Venjulegur leikur stendur yfir í fimm daga.
Einnig er til svokallaður hraðleikur sem stendur yfir í 3 daga.
Allir leikmenn eru með hvítan varalit.
Það er enginn hálfleikur eins og í fótbolta, heldur er te, yfirleitt um um hádegisleytið.
Í fótbolta eru algeng úrslit eitthvað á borð við eitt núll, eða þrjú tvö.
Í handbolta u.þ.b. 20 til 30 mörk á lið og sá vinnur sem skorar fleiri. ( ! )
Í krikket eru algeng úrslit einhernvegin svona:
247.3 * 54B (17 overs)
En athugið að þar er aðeins um annað liðið að ræða.
Hitt liðið fær:
419W (wickeds) * 53,86
Og eins og allir sem kunna eitthvað í krikket sjá náttúrulega strax er hér um
að ræða jafntefli. Hér eru reglurnar:
Aðal keppnin er kölluð the ashes , heimsmeistarakeppni landsliða. Þar er keppt um bikar sem er úr leir og er 8 cm á hæð.
Hægt að hengja hann á lyklakippu til dæmis.
Jamm . . .
TH
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.12.2008
Rúnar
*****
Það voru mikil forréttindi
að fá að kynnast þessum manni :
Við unnum saman í þrjá áratugi, spiluðum á böllum,
ferðuðumst um heiminn, sömdum saman lög ,
tókum upp plötur ...allt er það ógleymanlegt.
Hann var alveg einstakur.
Ég mun sakna hans mjög.
Fjölskyldunni votta ég mína dýpstu samúð.
Bloggar | Breytt 9.12.2008 kl. 05:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.11.2008
Nú fyrst syrtir í álinn !
Það liggur fyrir að Íslendingar skulda mörg hundruð þúsund milljónir úti í Evrópu.
Stærsta spurning dagsins , vikunnar, ársins ... aldarinnar, er þessi:
Hvað er til af eignum upp í skuldina ???
Fyrir helgi kom Björgólfur í West Ham í Kastljósi og sagði vera til plentí skæs fyrir þessu öllu. No problem, var samt ekki alveg viss. Svo kom Sigurjón hinn þrekvaxni og kvað lítið til upp í skuldafjallgarðinn, allt orðið veðsett. Síðan hef ég leitað stanslaust og sé ekki að nokkur einasti fjölmiðill hafi sýnt neinn áhuga að grafast fyrir um þetta smávægilega atriði.
Aftur á móti telst það stórfrétt að sjálfur
gæti verið í hættu vegna yfirvofandi aðildar að Evrópusambandinu . . .
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.11.2008
Breaking news
News alert !!!
Her Majesty´s Royal air force attacks
on terrorist Iceland comence in december.
Nuclear armed fighter jets are already on their way .
Shock and Awe !
I´ll be in the basement.
TH
|
Kostnaðurinn 25 milljónir - ekki 50 milljónir |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.10.2008
Bítlarnir hættir !
Ekki hefur nú margt gerst af viti hjá hinni tannskökku þjóð Bretum eftir að Bítlarnir hættu. MIG þotur í Keflavík og sovésk rauðsúpa er framtíðarsýn Gordons fyrir Ísland. Og kannski ekkert verra en sú hundslega fylgispekt sem við þekkjum við stríðsæsingaöflin í USA og UK .
Samtök herstöðvaandstæðinga er klúbbur sem alltaf hefur barist fyrir úrsögn úr NATO. Nú hlýtur Ísland að skrá sig í þann klúbb, með manni og mús. Hversvegna ættum við að fylgja Bush og Blair núna gegn Írak , Afghanistan ...og Rússum, sem aldrei hafa gert okkur neitt, og sýna ekkert annað en vinsemd í okkar garð þegar gefur á bátinn . . . ?
|
Bretar knésettu stærsta fyrirtæki Íslendinga með valdníðslu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)




aradia
saxi
gudni-is
gudbjorng
heringi
hjorleifurg
ingvarvalgeirs
jea
jensgud
drhook
juliusvalsson
sax
mal214
palmig
pjeturstefans
siggileelewis
valgeirskagfjord
metal